Fræðslufundur um krabbamein í ristli og forvarnir gegn því.

Næstkomandi þriðjudag 12. febrúar kl. 17:30 mun Lionsklúbburinn Embla á Selfossi standa fyrir fræðslufundi um ristilkrabbamein og fyrirbyggjandi aðgerðir gegn því. 

Fundurinn verður haldinn á Hótel Selfossi og mun Sigurjón Vilbergsson lyf- og meltingarlæknir halda erindi og svara fyrirspurnum um málefnið.

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Við viljum hvetja fólk til að mæta, þetta er málefni sem varðar okkur öll.

Lionsklúbburinn Embla