Framboð til embættis annars varaumdæmisstjóra 109A: Þar eru tvö í framboði Einar Þórðarson Lkl. Fjörgyn og Jóhanna Valdimarsdóttir Lkl. Kaldá. |
Einar Þórðarson Lkl. Fjörgyn Einar er stofnfélagi í Lkl. Fjörgyn, hefur gegnt flestum embættum innan klúbbsins, m.a. verið formaður tvisvar. Hann og klúbbur hans stóðu að baki áskorun um breytingu á fyrirkomulagi unglingabúða Lions hér á Íslandi1997. Hann var í undirbúningsnefnd unglingabúðanna og búðastjóri fyrstu búðanna sumarið 1999 á Laugarvatni. Þarna var brotið blað í sögu unglingaskipta Lions á Íslandi og eru slíkar búðir búnar að sanna gildi sitt. Hann var svæðisstjóri 1998-1999, unglingamálastóri 1999-2002, fjölumdæmisþingstjóri á 50 ára afmælisþingi Lions, umdæmisstjóri 109B 2003-2004, í úthlutunarnefnd Rauðrar fjaðrar, félagastjóri, verkefnastjóri MERL - félagafjölgun, sjónverndarfulltrúi 109A 2011-2012 og í Rauðufjaðrarnefnd 2011-2012. Tók þátt í stofnun Lkl. Skagastrandar og Lkl. Úlfari. Kennari í Leiðtogaskóla Lions. Þátttaka í alþjóðasamstarfi, m.a. leiðtogaskóla Lions og Evrópuþing í Portúgal, NSR þing á Álandseyjum, Noregi og í Reykjavík, á alþjóðaþingi Lions í Denver, í norrænu MERL teymi, fulltrúi Íslands á fjölumdæmisþingi Danmerkur. Einar var tilnefndur Melvin Jones félagi 1996 og 2005. Einar er kerfisfræðingur að mennt. Eiginkona hans er Bergljót Jóhannsdóttir í Lkl. Fold og eiga þau 3 uppkomin börn. |
Jóhanna Valdemarsdóttir Lkl. Kaldá Liosnsklúbburinn Kaldá býður fram Jóhönnu Valdemarsdóttur til embættis 2. varaumdæmisstjóra í umdæmi 109A á umdæmisþingi í apríl 2012. Jóhanna fæddist í Reykjavík 8. október 1947. Hún ólst upp í Reykjavík og á Skagaströnd. Jóhanna lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1967 og kennaraprófi frá Kennaraskólanum vorið 1971. 1992 lauk hún námi í sérkennslufræðum frá Kennaraháskólanum. Jóhanna starfaði sem grunnskólakennari og sérkennari í Lækjarskóla Hafnarfirði um langt skeið. Jóhanna var gift Erni Gunnarssyni fyrrverandi umdæmis- og fjölumdæmisstjóra og gekk í Lionsklúbbinn Kaldá haustið 1999, sama ár og Örn var varaumdæmisstjóri. Jóhanna hefur verið virkur félagi í klúbbnum og umdæmis- og fjölumdæmisstjórnum. Hún var formaður klúbbsins 2003 2004 og gjaldkeri 2007 2008. Hún var umdæmisritari í A umdæmi 2001 2002 og fjölumdæmisritari 2002 2003, LCIF fulltrúi í A umdæmi 2003 2004, fræðslu- og Lions Quest fulltrúi í A umdæmi 2004 2007 og menningarstjóri fjölumdæmis frá 2009. Jóhanna var svæðisstjóri á svæði 6 í A umdæmi 2007 2008. Jóhanna hlaut Melvin Jones viðurkenningu frá Kaldá árið 2008. Jóhanna og Örn eignuðust tvö börn og nú eru barnabörnin orðin fjögur. Jóhanna hefur mikinn áhuga á ferðalögum bæði utanlands og ekki síður innanlands með fjölskyldu og góðum vinum. Fjallgöngur eiga hug hennar allan þetta árið. Jóhanna þekkir vel til starfa umdæmis- og fjölumdæmisstjóra vegna samstarfs hennar og Arnar þegar hann gengdi þessum embættum og síðar með öðrum umdæmis- og fjölumdæmisstjórum er hún starfaði með þeim eins og fram kemur hér á undan. |
Ingimundur Guðberg Andrésson til embættis annars varaumdæmisstjóra 109B Ingimundur Guðberg er fæddur þann 20. júlí 1948 í Tálknafirði. Eftir að barnaskóla lauk lá leiðin í Vélskóla Íslands þar sem hann lauk burtfararprófi vorið 1970. Þá tók við nám í vélvirkjun í Vélsmiðju Tálknafjarðar sem lauk með sveinsprófi veturinn 1973. Hann hóf störf hjá Rafveitu Patrekshrepps í janúar 1973 þar sem hann lærði rafvirkjun og tók sveinspróf 1976. Er Orkubú Vestfjarða var stofnað og tók til starfa 1978 starfaði hann þar og starfar enn sem vélstjóri og rafvirki, nær óslitið að undanskildum tveim og hálfu ári sem hann starfaði við kennslu og sem hafnarvörður í Vesturbyggð. Ingimundur gekk í Lionsklúbb Patreksfjarðar í janúar 1977 hann var gjaldkeri klúbbsins starfsárið 1980-1981 en 1984 tók hann sér hlé í Lionshreyfingunni. Hann kom aftur í Lionsklúbb Patreksfjarðar veturinn 2003. Var ritari starfsárin 2003-2004 og 2004-2005, formaður klúbbsins starfsárið 2005 2006, Svæðisstjóri svæðis 4 í 109 B starfsárið 2010 til 2011. Ingimundur hefur setið nokkur þing hreyfingarinnar og haustið 2003 fór hann í Leiðtogaskóla Lions í Munaðarnesi. Ingimundur er kvæntur Sigurjónu Kristófersdóttur þau eiga þrjú uppkomin börn og 8 barnabörn. |
Hörður Sigurjónsson til embættis Kynningarstjóra MD109 Hörður Sigurjónsson Lkl. Nirði býður sig fram til embættis Kynningarstjóra MD109 |
KristóferTómasson til embættis GMT stjóra MD109 2012-2014 KristóferTómasson Lkl. Geysi býður sig fram til GMT stjóri MD109 2012-2014 |
Framboð til embættis alþjóðasamskiptastjóra 2012-2014: Þar eru tveir í framboði Einar Þórðarson Lkl. Fjörgyn og Halldór Kristjánsson, Lkl. Ásbirni |
Einar Þórðarson Lkl. Fjörgyn Einar er stofnfélagi í Lkl. Fjörgyn, hefur gegnt flestum embættum innan klúbbsins, m.a. verið formaður tvisvar. Hann og klúbbur hans stóðu að baki áskorun um breytingu á fyrirkomulagi unglingabúða Lions hér á Íslandi1997. Hann var í undirbúningsnefnd unglingabúðanna og búðastjóri fyrstu búðanna sumarið 1999 á Laugarvatni. Þarna var brotið blað í sögu unglingaskipta Lions á Íslandi og eru slíkar búðir búnar að sanna gildi sitt. Hann var svæðisstjóri 1998-1999, unglingamálastóri 1999-2002, fjölumdæmisþingstjóri á 50 ára afmælisþingi Lions, umdæmisstjóri 109B 2003-2004, í úthlutunarnefnd Rauðrar fjaðrar, félagastjóri, verkefnastjóri MERL - félagafjölgun, sjónverndarfulltrúi 109A 2011-2012 og í Rauðufjaðrarnefnd 2011-2012. Tók þátt í stofnun Lkl. Skagastrandar og Lkl. Úlfari. Kennari í Leiðtogaskóla Lions. Þátttaka í alþjóðasamstarfi, m.a. leiðtogaskóla Lions og Evrópuþing í Portúgal, NSR þing á Álandseyjum, Noregi og í Reykjavík, á alþjóðaþingi Lions í Denver, í norrænu MERL teymi, fulltrúi Íslands á fjölumdæmisþingi Danmerkur. Einar var tilnefndur Melvin Jones félagi 1996 og 2005. Einar er kerfisfræðingur að mennt. Eiginkona hans er Bergljót Jóhannsdóttir í Lkl. Fold og eiga þau 3 uppkomin börn. |
Halldór Kristjánsson, Lkl. Ásbirni Halldór býður sig fram til endurkjörs sem alþjóðasamskiptstjóri Lionshreyfingarinnar á Íslandi á þingi Lions í apríl. Halldór er verkfræðingur að mennt og hefur rekið eigið fyrirtæki í 26 ár með góðum árangri. Hann er sérfræðingur í upplýsingatækni og verkefnastjórnun. Halldór er Lionsfélögum á Íslandi vel kunnur vegna starfa sinna innan Lions. Hann hefur verið umdæmisstjóri umdæmis 109 A og fjölumdæmisstjóri auk þess að vera gjaldkeri Lionshreyfingarinnar í fjöldamörg ár, nú síðast frá árinu 2005-2011 en á þeim tíma snéri hann rekstri hreyfingarinnar úr tapi í það að nú á hreyfingin myndarlegan varasjóð. Halldór hefur tekið að sér fjölda annarra verkefna fyrir Lionshreyfinguna m.a. kennt formannaskólann á undanförnum þingum, verið kennari við Leiðtogaskóla Lions frá upphafi ásamt því að sinna ýmsum embættum í umdæmi og fjölumdæmi. Um tíma var hann vefstjóri hreyfingarinnar og hefur um langt skeið sinnt tölvumálum Lionshreyfingarinnar á skrifstofunni. M.a. skrifaði hann það félagatal sem hreyfingin hefur notað undanfarin 10 ár. Halldór var frumkvöðull að kynningu á Alþjóðahálparsjóðnum (LCIF) á Íslandi og starfaði í þrjú ár sem ritari (framkvæmdastjóri) samstarfsráðs Lions á Norðurlöndunum (NSR). Sem ritari NSR undirbjó hann flesta fundi og ráðstefnur sem haldnar voru á þess vegum á þeim tíma. Halldór hefur verið formaður undirbúningsnefndar á tveimur þingum Lionshreyfingarinnar hér á landi og einu NSR þingi. Halldór hefur mikla þekkingu á alþjóðlegu starfi Lionshreyfingarinnar. Hann hefur, ásamt fjölskyldu sinni, sótt mörg alþjóðaþing Lions á eigin vegum, í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu og að auki mörg Evrópu- og samnorræn þing (NSR). Sem alþjóðasamskiptastjóri árin 2010-2012 hefur hann lagt mikla áherslu á að efla samstarf Lions á Norðurlöndum og að opna nýjar leiðir fyrir íslenska Lionsklúbba til að taka þátt í verkefnum á erlendri grundu og mynda tengsl við klúbba erlendis. Halldór hefur tvisvar hlotið Leadership Award viðurkenningu alþjóðaforseta fyrir störf sín fyrir Lionshreyfinguna og er Progressive Melvin Jones félagi. |
|
|
|