Frétt frá LKL. Kolgrímu

 

Í marsmánuði héldum við Krúttmagakvöld sem var skemmtikvöld eingöngu ætlað konum og voru allar konur velkomnar og mættu 75 konur á aldrinum 20 – 90 ára og skemmtu sér saman og er stefnan að gera þetta að árlegum viðburði.

Í apríl ætlum við svo auðvitað að taka þátt í sölu á Rauðu fjöðrinni.  Svo er stefnan í vor að halda fjölskyldugrill með strákunum okkar í gróðurlundi Lkl. Hornafjarðar, og munu þar allir hjálpast að við að snyrta lundinn og hlúa að gróðri og náttúru.

Við hlökkum mikið til næsta starfsárs og erum afskaplega stoltar af því að hafa fengið inngöngu í Lionsfjölskylduna.

Með kærri kveðju frá Hornafirði

Nánar í Lionsblaði 265 í apríl