Glæsileg stofnskrárhátíð Lionsklúbbsins Kolgrímu.

Kolgrimur2a

Formaður Lionsklúbbsins Kolgrímu, Sandra Björk Stefánsdóttir undirritar stofskrársáttmála undir vökulum augum umdæmisstjóra Kristínar Þorfinnsdóttur. Á myndinni eru einnig f.v. Anna María Kristjánsdóttir, formaður félaganefndar Anna Lilja Ottósdóttir, gjaldkeri og Þórunn Anna Karlsdóttir, ritari.

Kolgríma er nýr kvennaklúbbur á Höfn í Hornafirði sem var stofnsettur í nóvember 2010.

Stofnskrárhátíð var haldin á Smyrlabjörgum 19. febrúar að viðstöddu fjölmenni.   Föðurklúbbur Kolgrímu er Lionsklúbbur Hornafjarðar og áttu þeir veg og vanda af hátíðinni.

Hinar nýju Lionskonur í Kolgrímu undirrituðu stofnskrárskjal sitt og fengu allar stofnfélaga Lionsmerki í barminn.