Guðrún Björt Yngvadóttir tilnefnd af Alþjóðastjórn Lions

STÓRFRÉTT fyrir Lions á Íslandi og Lions í öllum heiminum. Guðrún Yngvadóttir hefur verið tilnefnd af alþjóðastjórn Lions og sitjandi alþjóðaforsetum, það er 1. og 2. vara sitjandi og fráfarandi, til að vera þeirra frambjóðandi til 2. vara forseta á alþjóðaþinginu í Japan næsta ár.  Þar með verður hún fyrsta konan til að gegna embætti alþjóðaforseta. Mikil tíðindi.  Hér má hlusta á viðtal við Guðrúnu Björt í Síðdegisútvarpinu á Rás 2, 18.11.2015.  Viðtalið við hana byrjar eftir 1:35:00 Guðrún Björt Ingvadóttir