Hvernig verður þú Lionsfélagi

Hefur þú áhuga á að „Leggja lið“ með öflugum alþjóðlegum hjálparsamtökum og öflugum alþjóðlegum liðsanda.

Lions getur verið svarið fyrir þig.

Hafðu samband við lions@lions.is eða einfaldlega hafðu samband við vinnufélaga, nágranna eða einhvern sem þú veist að er lionsfélagi og óskaðu eftir því að koma á fund og kynnast hreyfingunni betur. 

Þú getur líka haldið áfram og flett á „ klúbbar“ þá getur þú fundið þann klúbb sem er næstur þér. Þegar þú ert búinn að finna klúbb sem þér lýst vel á velur þú hann og finnur nöfn á stjórnendum klúbbsins, sem þú getur haft samband við.