Jólakort Lionsklúbbsins Emblu 2012

Embla_Jolakort_2012a

Lkl. Embla gefur út jólakort fyrir þessi jól eins og undanfarin fjögur ár. Listamaðurinn og Lionsfélagi í Lkl Selfoss, Jón Ingi Sigurmundsson, leggur okkur lið í ár, eins og hann hefur gert frá upphafi, með mynd sinni sem prýðir kortið. Allur ágóði af sölu kortanna rennur í líknarsjóð klúbbsins. Lkl. Embla hefur styrkt Hjálparsjóð RKÍ hér á Selfossi, einnig hefur hann styrkt fleiri verkefni í heimabyggð.

Hægt er að kaupa kortin hjá Emblufélögum, í Árvirkjabúðinni, í Guðnabakaríi, og Heilsugæslunni á Selfossi. Ennfremur verða Emblur með kortin til sölu í Kjarnanum laugardaginn 10. nóv. og í Húsasmiðjunni á konukvöldi fimmtudaginn 8. nóv.

Lionsklúbburinn Embla