Lionsklúbbur Húsavíkur býður upp á fríar blóðsykurmælingar.

Lionsklúbbur Húsavíkur býður upp á fríar blóðsykurmælingar.

Ertu með Sykursýki ?

Nú gefst þér tækifæri til að athuga það, 14. nóvember kl. 14 – 17 í Lionshúsinu Bakka. Lionsklúbbur Húsavíkur býður öllum Húsvíkingum og nærsveitungum ókeypis blóðsykur- og blóðþrýstingsmælingu í Lionshúsinu Bakka.  Starfsmenn frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands verða á staðnum og framkvæma mælinguna, þú færð niðurstöðuna strax. Lionsmenn bjóða upp á kaffi og með því eftir mælingu. Líttu inn og athugaðu hvort líkur séu á því að þú sért með sjúkdóm sem hægt er að halda niðri með réttri meðhöndlun. Velkomin í Lionshúsið Bakka Lionsklúbbur Húsavíkur. Hér má lesa nánar viðtal við "Heilbrigðisráðherra Lionsklúbbs Húsavíkur".