Lkl. Laugardals

Það eru sjálfsagt ekki margir klúbbar sem hafa svona samsetningu innan sinna raða.

Þarna eru samankomnir 10 Lionsfélagar úr Lionsklúbbi Laugardals, á ættar og vinnuhelgi á Hjálmsstöðum. Þarna er Hilmar Einarsson, tengdasonur að Hjálmsstöðum,  með fjóra syni sína og svo eru þarna fjórir synir Páls bónda á Hjálmsstöðum og Tómas Tryggvason tengdasonur að Hjálmsstöðum. Alls eru í klúbbnum 32 félagar.

Laugardals_2012_juli_a

Taldir frá vinstri: Daníel Pálsson, Tómas Tryggvason, Pálmi Pálsson, Torfi Pálsson, Víðir Pálsson, Sigurður Rafn Hilmarsson, Hilmar Einarsson, Pálmi Hilmarsson, Einar Hilmarsson og Andri Páll Hilmarsson.