Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Lkl. Laugdals hélt uppá 40 ára afmæli sitt með dagsferð um nærsveitir, laugardaginn 12. maí. Klúbbfélagar ásamt mökum hófu ferð klukkan 14.00 og héldu fyrst að Reykhól á Skeiðum og heimsóttu húsráðendur þar. Síðan var haldið að Ásgerði í Hrunamannahreppi og minkabú Sigurðar Jónssonar og fjölskyldu skoðað. Mikið tíst heyrðist frá búrunum þar sem flestar læður voru nýgotnar. Fylgst er með frjósemi hverrar læðu og allt skráð í tölvu. Næst var haldið í Hrunarétt en hún er í endurbyggingu og notast er við stuðlaberg í almenning og hliðstólpum dilka. Verður þetta sérstakt mannvirki þegar verkinu lýkur. Þá var komið að Flúðasvepp og starfsemin skoðuð undir leiðsögn Eiríks Ágústssonar framleiðslustjóra. Kom það ferðalöngum á óvart hversu neysla sveppa er mikil hér á landi.
Ferðin endaði svo með fundi og hátíðarkvöldverði á Hótel Geysi. Þar voru þeir Pálmi Hilmarsson og Sævar Ástráðsson gerðir að Melvin Jones félögum vegna margvíslegra starfa í þágu klúbbsins.
F.v. Hilmar Einarsson form. Pálmi Hilmarsson, Sævar Ástráðsson og
Rúnar Gunnarsson ritari