Lkl. Seltjarnarness færir Leikskólanum IPad

Á starfsdegi Leikskólans á Seltjarnarnesi 18. október s.l. færði Lionsklúbbur Seltjarnarness skólanum 2 iPad spjaldtölvur að gjöf.  Tölvunar verða notaðar við kennslu og til stuðnings við starf þroskaþjálfa skólans.  Lionsklúbbur Seltjarnarness, sem á 30 ára afmæli á næsta ári, hefur í gegnum árin stutt sitt samfélag jafnframt því að styðja einnig lands- og alþjóðasafnanir Lionshreyfingarinnar.  Þeir sem hafa áhuga á því að ganga til liðs við Lionsklúbb Seltjarnarness er bent á að hafa samband við ritara í síma 896-5758.

Frettatilkynning_Seltjarnarness
Frá vinstri Gunnar H. Pálsson formaður líknarnefndar, Guðjón Jónsson gjaldkeri, Soffía  Guðmundsdóttir leikskólastjóri, Sigurður H. Engilbertsson ritari og Bragi Ólafsson formaður.