Lkl. Vestmannaeyja afhendir jólatré

Lionsklúbbur Vestmannaeyja heimsótti íbúa Sambýlisins og afhennti þeim fullskreytt jólatré og fleirajlatr_afhent_0011jólaskraut. Við fengum góðar móttökur eins og alltaf þegar við komum. Það voru allir komnir í jólaskap og hlökkuðu mikið til jólana. Það er búið að skreyta mikið í eyjum, bæði fyrirtæki og einstaklingar hafa skreytt mikið. Það hefur verið kalt hér hjá okkur síðustu vikur eins og aðrir landsmenn hafa orðið varir við og það hefur snjóað þónokkuð hér hjá okkur en nú er útlit á að það verði rauð jól hjá okkur.

Við óskum öllum Lions og landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, þökkum öllum fyrir samveruna á árinu sem er að líða.

Lionsklúbbur Vestmannaeyja

Gleðileg jól