Nesti og nýir skór aftur á ferð

Lestrarátaksteymi Lions ásamt IBBÝ konum koma sendingu af bókinni
Lestrarátaksteymi Lions ásamt IBBÝ konum koma sendingu af bókinni "Nesti og nýir skór" í hendurnar á Lionsfélögum sem síðan taka að sér að koma þeim til bókasafna í þeirra heimabyggð.

Úrvalsbókin Nesti og nýir skór hefur nú verið send um land allt, annað árið í röð, en öll sex ára börn fá bókina að gjöf við upphaf skólagöngu.

Bókin er gefin út með stuðningi frá Lions á Íslandi, Barnavinafélaginu Sumargjöf, Norvik, Miðstöð íslenskra bókmennta og Borgarbókasafni og geymir sögur, myndir og ljóð frá fyrri tímum – sögur sem foreldrar, kennarar, ömmur og afar þekkja og munu njóta þess að kynna fyrir börnum sínum.

Ritstjórar eru Sólveig Ebba Ólafsdóttir og Þorbjörg Karlsdóttir fyrir hönd IBBY og Sigþrúður Gunnarsdóttir fyrir hönd Forlagsins. Samstarf bókasafna og grunnskóla um allt land tryggir svo að bókin rati til eigenda sinna og vonandi verður hún þeim gott veganesti á lestrarferðalaginu framundan.