Ókeypis blóðsykurmæling.

Ágætu Akurnesingar og nærsveitamenn !  

AkranesLaugardaginn 17. nóvember n.k. munu Lionsklúbbur Akraness og Félag  Sykursjúkra bjóða fólki upp á fría blóðsykurmælingu.  Ólafur Adolfssson hjá  Apóteki Vesturlands er öflugur bakhjarl þessa verkefnis og útvegar það sem til þarf í mælinguna.  Mælingin fer fram í verslanamiðstöðinni að Smiðjuvöllum 32 (Bónus) laugardaginn 17. nóvember 2012 milli klukkan 13.00. og 16.00.- 

Sykursýki (diabetes mellitus) er efnaskiptasjúkdómur sem einkennist af of háum blóðsykri, sem stafar annaðhvort af of litlu magni insúlíns í blóði eða af óeðlilegri virkni insúlíns ásamt því að magn þess sé of lítið.  Algengustu einkennin eru þorsti, tíð þvaglát og sjóntruflanir.

Tegund tvö af sykursýki fyrirfinnst í flestum tilfellum í eldra fólki, en er þó farið að finnast í yngri kynslóðum með hækkandi tíðni offitu í heiminum.  Meðferð við sykursýki af tegund tvö er í byrjun oftast breytt mataræði og góð líkamleg hreyfing.  En þegar sjúkdómurinn er kominn lengra getur lyfjagjöf verið nauðsynleg. 

Þegar fólk mætir í blóðsykurmælingu, sem er einföld í framkvæmd, fæst úr því skorið hvert blóðsykurgildið er.  Stungið er í fingurgóm og teknir nokkrir blóðdropar, sem settir eru á strimil og niðurstaðan fæst svo til strax.   Ef niðurstaðan er á þann veg að viðkomandi er með háan blóðsykur, þá er honum umsvifalaust bent á að ræða við heimilislækni sinn.

Þann 14. nóvember ár hvert er alþjóðlegur sykursýkisvarnadagur Lionshreyfingarinnar.   Í tæp sextíu ár hefur það verið baráttumál Lionshreyfingarinnar að fræða fólk um sjúkdóminn og finna þá sem ganga með dulda sykursýki.

Með þessu átaki viljum við í Lionsklúbbi Akraness og Félagi Sykursjúkra ásamt Apóteki  Vesturlands stuðla að betri forvörnum og hjálpa til við að finna þá sem eru með þennan sjúkdóm á byrjunarstigi.

f.h. Lionsklúbbs Akraness

Benjamín Jósefsson