Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Við erum búnir með þrjár verkanir síðan í haust þannig að við stöndum okkar vakt, segir Kári Þór Jóhannsson, formaður Lionsklúbbs Ísafjarðar sem ásamt félögum sínum í klúbbnum verkar skötu í tonnavís. Skötusala er helsta fjáröflun klúbbsins og er sívinsæl.
Fastakúnnarnir eru löngu byrjaðir að panta og menn eru byrjaðir að senda Íslendingafélögunum erlendis eins og undanfarin ár. Skatan fer á alla staði þar sem Íslendingar eru, þeir eru allmargir komnir á bragðið hjá Vestfirðingum. Eins er hún send út um allt land.
Sjá meira á MBL.is