Skráning í Leiðtogaskólann 2015 hafin

Skráning í Leiðtogaskólann 2015 hafin
Í febrúar og mars verður Leiðtogaskóli Lionshreyfingarinnar haldinn á höfuðborgarsvæðinu, nánar tiltekið 14. og 15. febrúar og 14. og 15. mars. Allar nánari upplýsingar má finna í nýjasta Lionsblaðinu eða með því að smella á þennan tengil til að skoða auglýsingu fyrir Leiðtogaskólann. Einnig er hægt að hafa samband við Halldór Kristjánsson (halldor@tv.is) GLT stjóra í síma 893 0090. Skráning fer fram á skrifstofu Lions (sími 561 3122). Vinsamlega athugið að þátttakendafjöldi er takmarkaður þannig að það er mikilvægt að bóka sem fyrst til að tryggja sæti.