Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Þriðji svæðisfundurinn var haldinn þann 29. Mars
Mæting var góð og góður gangur í klúbbastarfinu á svæðinu, fjölbreytt og fræðandi verkefni.
Ánægjulegustu fréttirnar voru um hinn nýja klúbb sem var svo stofnaður þann 31. Mars Lionsklúbburinn Dynkur. Bjóðum við öllum þessum glæsilegu nýju lionsfélögum velkomna í hópinn okkar á svæði 4.
Við fengum Njál Pálsson bráðatækni og sjúkraflutningamenn til að sýna okkur og segja frá hvernig Lucas hjartahnoðtækið virkar.
Njáll Pálsson bráðatæknir kynnir okkur fyrir Lucasi hjartahnoðtæki sem Lionsklúbbar á svæði 4 ætla að fjármagna.
Klúbbarnir á svæðinu eru að vinna í fjáröflun til kaupa á slíku tæki fyrir sjúkraflutningamennina okkar.
Gunnar Sverrisson, varasvæðisstjóri mætti á fundinn og kynnti sig.
Ánægjulegur fundur í alla staði og við lionsfélagar á svæði númer 4 þökkum Guðríði Þ. Valgeirsdóttur fyrir gott starf í vetur.
Guðríður Valgeirsdóttir svæðisstjóri og Kristín Þorfinnsdóttir ritari svæðisstjóra báðar úr Lkl. Emblu
Sjúkraflutningafólkið okkar.
Anna María og Steinunn Lkl. Eden í Hveragerði
Ingibjörg formaður Lkl. Emblu | |
Anna María formaður Lkl. Eden | |
Hannes Stefánsson formaður Lkl. Selfoss | |
Örn Erlendsson formaður Lkl. Geysir | |
Axel Wolfram formaður Lkl. Hveragerðis | |
Gunnar Sverrisson varasvæðisstjóri, Lkl. Geysi | |