Sviðamessa Lionsklúbbs Grindavíkur

Sviðamessa Lionsklúbbs Grindavíkur

Nú þegar Grindavík hefur verið opnuð fyrir almenning hefur Lionsklúbbur Grindavíkur ákveðið að efna til Sviðamessu á Sjómannastofunni Vör föstudaginn 1. nóvember. Þetta verður veisla á heimsmælikvarða og allir hvattir til að mæta og njóta samverunar og gæða sér á góðum mat.