Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Lionsklúbburinn Ýr hélt sinn lokafund á starfsárinu mánudaginn 14. maí. Gestur fundarins var Guðrún Björt Yngvadóttir, alþjóðastjórnamaður og flutti hún okkur fróðlegt erindi um störf sín í alþjóðastjórn síðastliðin tvö ár og annan fróðleik.
Að loknu erindi hennar heiðraði Lionsklúbburinn Ýr Guðrúnu Björt Melvin Jones Progress viðurkenningu fyrir frábært brautryðjandi starf í þágu kvenna innan Lionshreyfingarinnar, en eins og væntanlega allir vita er hún fyrsta konan í Evrópu sem situr í alþjóðastjórn. Félagar í Lionsklúbburinn Ýr eru stoltar að þessum frábæra Lionsfélaga.
Jórunn Guðmundsdóttir, formaður Lkl. Ýr Kópavogi