Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Frú Vigdís Finnbogadóttir setur af stað spilun á prufu- |
Á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember 2011, var kynntur mikilvægur áfangi í Talgervilsverkefni Blindrafélagsins, sem ber yfirskriftina: Nýr íslenskur talgervill í þjóðareign bætt lífsgæði íslensk málrækt. Þetta verkefni var sem kunnugt er styrkt af Lions, með afrakstri Rauðufjaðrarsöfnarinnar í vor.
Áfanginn felst í því að prufuútgáfur af nýjum íslenskum talgervilsröddum, Karli og Dóru, heyrðust í fyrsta sinn opinberlega. Frú Vigdís Finnbogadóttir, verndari verkefnisins, setti af stað spilun á röddunum á samkomu sem var í húsi Blindrafélagsins kl. 14:00 á degi íslenskrar tungu.
Nánari upplýsingar um talgervlaverkefni Blindrafélagsins má sjá hér: http://www.blind.is/verkefni/talgervlaverkefnid/ og hér: http://www.blind.is/frettir/nr/1338