Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Sem kunnugt er lauk Guðrún Björt Yngvadóttir Lkl. Eik seinna ári sínu sem alþjóðastjórnarmaður Lions á þinginu í Busan í Suður Kóreu. Hún hefur sýnt með starfi sínu og elju að með góðu fordæmi, einlægni, ástríðu og vinnusemi leggur maður inn á sjóð virðingar og vináttu sem er betri nokkru öðru og ekki verður keypt á torgum úti. //kgk//. Nú vex hróður hennar því hún hefur verið valin sem einn af átta sérstökum ráðgjöfum hins nýja alþjóðaforseta Wayne A Madden frá Bandaríkjunum. Við óskum henni til hamingu með þennan heiður. Við Lionsfólk á Íslandi skulum vera stolt yfir að eiga slíkan leiðtoga, sem fulltrúa okkar.