Lionsklúbburinn Agla, Borgarnesi afhendir tveimur félögum hjartastuðtæki að gjöf.

Lionsklúbburinn Agla, Borgarnesi afhendir tveimur félögum hjartastuðtæki að gjöf.
Verkefnanefnd Lionskl. Öglu ákvað að færa Golfklúbbi Borgarness og Hestamannafélaginu Skugga sitt hvort hjartastuðtækið að gjöf. Peninga til kaupa á tækjunum öfluðum við með Öglublaðinu, sölu á kertum og dagatölum og Guðrúnar frá Lundi kvöldi. Við þökkum öllum sem styrkt hafa okkur í þessum fjáröflunum án ykkar gætum við ekki lagt það lið sem við höfum gert bæði innan og utan héraðs. Einkunnarorð Lions er jú " Við leggjum lið". Afhent Golfkl Á myndinni eru f.v. María Guðmundsdóttir form. verkefnanefndar Lk. Öglu, Ingvi Árnason, Jóhannes Ármannsson, Ingibjörg Hargrave form. Lk. Öglu, Sigrún Elíasdóttir Lk. Öglu. Afhent Hestam.fel Öglukonur afhenda hestamönnum hjartastuðtæki. F.v. María Guðmundsdóttir form. verkefnanefndar Lk. Öglu, Stefán Logi Haraldsson, Kristján Gíslason, Ingibjörg Hargrave  form. Lk.. Öglu og Sigrún Elíasdóttir Lionskl. Öglu.