Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Magnús Gunnarsson formaður lionsklúbbsins afhenti Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra hjartastuðtækið.
Mynd af vef lögreglunnar.
Lionsklúbburinn Ásbjörn færði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær hjartastuðtæki sem verður til taks í útkallsbíl lögreglunnar í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar en það var Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sem veitti gjöfinni viðtöku.
Tækið sem ber nafnið Lifepak CR Plus er alsjálfvirkt og gefur fyrirskipanir á íslensku. Það getur tengst hjartastuðtækjum í öllum sjúkrabílum á landinu en ásamt fylgihlutum kostar tækið um 250 þúsund krónur.
Árlega fara um 300 manns í hjartastopp á Íslandi en þegar slíkt gerist skiptir hver mínúta máli og getur stuttur viðbragðstími skilið milli lífs og dauða. Lögregla er oft fyrsti viðbragðsaðili á staðinn og er því mjög mikilvægt að tækjabúnaður hennar sé fyrsta flokks.