Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Málþingið um framtíð barna í dag 28. febrúar, sem Lions á Íslandi hélt með Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands gekk mjög vel.
Fyrirlesarar voru Guðrún Björt Yngvadóttir, alþjóðastjórnarmaður Lions, Elísabet Karlsdóttir framkvæmdastýra, RBF, Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, HÍ, Katrín Þorsteinsdóttir, félagsráðgjafi, Sigríður Björnsdóttir, verkefnastjóri Blátt áfram.
Á málþinginu var fjallað um valin málefni sem eru viðkvæm og brennandi úrlausnarefni sem varða börn og fjölskylduvernd. Eitt af því sem ber á góma er svokölluð óhamingjugildra.
Niðurstaða ráðstefnunar var að stofna á til samskipta og samvinnu þátttakenda, með því að allar upplýsingar verða aðgengilegar á vef RBF, þar á meðal okkar vefsíða og LCI..
Hér eru nokkrar úrklippur úr blöðunum um málið:
Það er ekki nóg að tækifærin séu til, einstaklingurinn þarf að hafa hvata til þess að sjá þá möguleika sem hann hefur á að nýta sér þau, segir dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, Rannsóknarstofnunnar í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Rannsóknarstofnunin stendur í dag fyrir málþingi í samstarfi við Lionshreyfinguna á Íslandi, undir yfirskriftinni Framtíð barna: Forvarnir 1, 2 og 3!, en þar verður fjallað um ýmis málefni er varða börn og fjölskylduvernd, m.a. það sem Sigrún hefur kosið að kalla óhamingjugildruna.
Sjá meira >>>>>
Forvarnarstarf í kynferðisbrotum gegn börnum er samfélaginu nauðsynlegt og sparar til lengri tíma mikið fjármagn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrirlestri Sigríðar Björnsdóttir, verkefnastjóra Blátt áfram, á málþinginu Framtíð barna sem haldið verður í Öskju í Háskóla Íslands í dag.
Sjá meira >>>>>