Markmið Lions

  1. Að skipuleggja, stofna og hafa eftirlit með starfi þjónustuklúbba sem nefndir eru Lionsklúbbar.
  2. Að samhæfa verkefni Lionsklúbba og samræma stjórnunarhætti þeirra.
  3. Að vekja og efla anda skilnings meðal þjóða heims.
  4. Að efla meginreglur heilbrigðs stjórnarfars og borgaralegra dyggða.
  5. Að sýna virkan áhuga á velferð samfélagsins í félagsmálum, menningu og almennu siðgæði.
  6. Að tengja klúbbana böndum vináttu, góðs félagsanda og gagnkvæms skilnings.
  7. Að skapa vettvang fyrir frjálsar umræður um málefni sem varða almannaheill, en undanskilja þó umræður um stjórnmál og trúarbrögð.
  8. Að hvetja þjónustuviljugt fólk til að leggja lið í sínu samfélagi, án persónulegs, fjárhagslegs ávinnings og hvetja til dugnaðar og eflingar siðgæðis í viðskiptum, iðnaði, atvinulífi, opinberri þjónustu og einkarekstri.