Föstudaginn 8. maí, milli kl. 12:00 og 13:00, verður Opið hús í Lionsheimilinu í síðasta sinn í vetur. Það þýðir að núna er síðasta tækifærið að mæta.
Upplagt að fá sér kaffi/te og kleinur, hitta mann og annan, rabba saman um heima og geima og heilsa upp á Lionsskrifstofuna. Ef þú ert í Reykjavík á þessum tíma þá endilega kíktu við. Það má taka með sér gesti.
Boðið er upp á súpu og brauð. Kostar aðeins 500 krónur. Kaffi og kleinur er frítt en alltaf má styrkja verkefnið. Örfréttir verða á sínum stað :-)
Sjá nánar í auglýsingu hér: