
Þann 10. október næstkomandi býður Blindrafélagið, í samstarfi við Augnlæknafélag Íslands, Lions á Íslandi og Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga til ráðstefnu í tilefni af alþjóðlega sjónverndardeginum.
Yfirskrift ráðstefnunnar er: Barist gegn og lifað með blindu og sjónskerðingu.
Ráðstefnustaður: Hótel Natura (Hótel Loftleiðir) frá kl 10:00 - 16:30.
Fyrri hluti ráðstefnunnar mun fjalla um þjónustu við blinda og sjónskerta einstaklinga auk þess sem nokkrir úr þeirra hópi munu segja frá högum sínum. Ráðstefnustjórar fyrri hlutans verða: Brynhildur Ingvarsdóttir formaður Augnlæknafélags Íslands og Rósa María Hjörvar.
Eftir hádegi verður lögð áhersla á umfjöllun um rannsóknir og tilraunir til að finna meðferðir við ólæknandi arfgengum hrörnunarsjúkdómum í sjónhimnu, m.a. AMD, RP, LCA, USHER o.fl. Fyrirlesarar verða bæði erlendir og innlendir vísindamenn, þeirra á meðal er Dr. Gerald J. Chader frá Bandaríkjunum, sem mun flytja ítarlegan fyrirlestur um það helsta sem er að gerast á þessum vettvangi víða um heim.
Jafnframt mun Josephine Prenner Holtan, sem er að vinna að doktorgráðu í arfgengum sjónhimnusjúkdómum við Augndeild Háskólasjúkrahússins í Osló, fjalla um greiningar og skráningar sjúklinga og Tesola rafeindapúlsameðferðina sem verið er að gera tilraun með í Osló og á fleiri stöðum.
Aðrir sem munu flytja erindi eru Pr. Kristinn P. Magnússon erfðafræðingur , Dr. Þór Eysteinsson lífeðlisfræðingur og Christina Fasser forseti Retina International.
Ráðstefnustjóri vísindahlutans verður Dr. Einar Stefánsson.
Fyrirlestrar á ensku verða túlkaðir yfir á íslensku.
Boðið verður uppá kaffi, meðlæti og hádegisverð. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Ekkert ráðstefnugjald er innheimt en skrá þarf sig á ráðstefnuna á netfangið
khe@blind.is
Dagskrá og nánari upplýsingar síðar verða kynntar síðar.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á
khe@blind.is