Söfnum birkifræi - ennþá er hægt að taka þátt

Söfnum birkifræi - ennþá er hægt að taka þátt

Umhverfisnefnd hvetur klúbba til að safna Birkifræjum.  Söfnunarkassar eru í verslunum Bónus og verslunum Olís og hægt að skila á sömu staði.

Merkja á kassana hvar er tínt, dagsetningu og hvaða klúbbur tíndi.

Betra að fræin séu þurrkuð inni áður en kössum er lokað.

Má tína í október og jafnvel í nóvember eða svo lengi sem má finna fræ. 

Myndband frá Skógræktinni. Í þessu myndbandi er farið yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga þegar farið er út að safna birkifræi.

Á kössunum koma fram nöfn bakhjarla. Það eru prentmet Oddi, Bónus, Olís, merki Lions kemur skýrt fram og síðan Landvernd.

Verkefnið er á vegum:  Landgræðslunnar, skógræktarinnar.  Aðra aðila sem koma að verkefninu má sjá á birkskogur.is