Starfið í Hveragerði hafið

Frb_lkl_Hvg_nr_1_2012-2013Lionsklúbbur Hveragerðis hefur nú hafið 42 starfsár sitt og var fyrsti fundur haldinn síðastliðið mánudagskvöld á Hoflandsetrinu.

Þegar er búið að setja upp ný upplýsingarskilti á tveim stöðum við innkomu í bæinn og var það gert í sumar. Mikil og forvitnileg dagskrá er áætluð í vetur, heimsóknir í fyrirtæki, fyrirlesarar koma í heimsókn og ferðir klúbbfélaga. Þá er áætlaðir tónleikar í haust, árlegur Jóladansleikur verður á Hótel Örk og samfundur verður með Lionsdeildinni Eden í vor.

Lionsklúbbur Hveragerðis hefur undanfarin ár gefið út fréttabréf, sjá á klúbbsíðunni >>>>>

Stjórn klúbbsins skipa nú; Formaður Rögnvaldur Pálmason, ritari Sveinn Sigurðsson og gjaldkeri Símon Bjarnason.  Kristinn G. Kristjánsson  er Fjölumdæmisstjóri  umdæmis 109 og Birgir S. Birgisson er GMT fulltrúi eða Fjölgunarfulltrúi fyrir Fjölumdæmi 109a.